<$BlogRSDUrl$>

21.6.05

Af tilefni dagsins bíð ég öllum fjelagsmönnum sögufjelagsins í síðdegiskaffi með rjómapönnsum að Kupkagasse 2
1080 Wien
Austurríki

Kveðja úr Vínarborg.
Örvar Már Kristinsson
Cantor Sögufjelags Hafnarfjarðar

14.6.05

-Jónsmessuhátíð Sögufjelags Hafnarfjarðar-
Stefnt er að því að halda hina árlegu Jónsmessuhátíð Sögufjelagsins í fyrsta skipti nú í ár. Hátíðin þetta árið mun fara fram föstudagskvöldið 24. júní næstkomandi, í fjelagsheimilinu, og verður ýmislegt hressandi mjög á dagskrá.
Hafi menn einhverjar athugasemdir við þessa dagsetningu eru menn vinsamlegast beðnir að gera grein fyrir því í athugasemdakerfi síðunnar eða setja sig í samband við formann fjelagsins.

Með bestu kveðju
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?