<$BlogRSDUrl$>

18.5.05

-Amrísk filmstjarna velur Hafnarfjörð umfram annað-
Í fréttum í gær kom fram að amríska filmstjarnan Clint Eastwood er væntanlegur til landsins á næstu misserum vegna upptöku á nýrri kvikmynd. Kom fram að stjarnan frábað sér gistingu á einhverju glæsihóteli höfuðborgarinnar, en vildi þess í stað fá að gista á rólegu gistiheimili, helst í Hafnarfirði. Greinilega fer fögrum sögum af okkar góða bæjarfélagi í henni Hollýwood og verður þess vart langt að bíða að alþjóðlegar stjörnur fylla bæinn okkar góða.

Þess ber svo að geta að starfsemi okkar góða fjelags fer að komast í sumargírinn og verða ýmsar skemmtilegar uppákomur á næstunni, auk þess sem nýir pistlar eru væntanlegir á þessa síðu.

Með kveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?