<$BlogRSDUrl$>

23.12.04

-Jólakveðja-
Sögufjelag Hafnarfjarðar sendir öllum fjelagsmönnum sem og öðrum Hafnfirðingum hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir árið sem nú er senn á enda.

Fyrir hönd Sögufjelags Hafnarfjarðar
Sverrir Þór Sævarsson, formaður.

22.12.04

-Jólakveðja til fjelaga í Sögufjelagi Hafnarfjarðar-
Jeg sendi ykkur mínar beztu jólakveðjur og þakka fyrir hið öfluga ár er nú er að líða.
Kveðja
Helgi Sævarsson ritari.

2.12.04

-Ókeypis "fróðleiksmolar" í Pakkhúsinu-
Sælir fjelagar.
Ég rakst á eftirfarandi frétt á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar, hafnarfjordur.is, og langaði að deila þessu með ykkur...þetta gæti verið áhugavert:

Mánaðarlega mun Byggðasafn Hafnarfjarðar bjóða upp á „Fróðleiksmola“ í sýningarhúsinu, Pakkhúsinu við Vesturgötu 8. Á afmælisári rafvæðingar er við hæfi að Sveinn Þórðarson sagnfræðingur, kennari og höfundur bókarinnar Afl í segulæðum. Saga rafmagns á Íslandi í 100 ár, miðli fyrsta fróðleiksmolanum og mun hann fjalla um aðdraganda og upphaf rafvæðingar sem og þróun fram eftir öldinni.

„Fróðleiksmolar“ í Pakkhúsinu 2004-2005
Desember
Miðvikudagurinn 8. desember, kl. 20:00.
Efni: Um aðdraganda og upphaf rafvæðingar og þróun fram eftir öldinni. Sveinn Þórðarson, sagnfræðingur og kennari, höfundur bókarinnar: Afl í segulæðum. Saga rafmagns á Íslandi í 100 ár.
Janúar
Miðvikudagurinn 19. janúar, kl. 20:00.
Efni: Athafnalíf á Norðurbakkanum.
Febrúar
Miðvikudagurinn 16. febrúar, kl. 20:00.
Efni: Um húsvernd og endurgerð gamalla timburhúsa.
Mars
Miðvikudagurinn 16 mars, kl. 20:00.
Efni: Félagsmiðstöðvar í sögulegu ljósi.
Apríl
Miðvikudagurinn13. apríl, kl. 20:00.
Efni: Um menningarútivist í Hafnarfirði.


Með kveðju
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?