<$BlogRSDUrl$>

15.2.07

-Fróðleiksmolar í Pakkhúsinu-
Kæru fjelagar.
Í kvöld mun sjálfur formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar stíga á stokk í Byggðasafni Hafnarfjarðar og flytja fyrirlestur um sögu kvikmyndasýninga í Hafnarfirði, með sérstaka áherslu á gullaldartímabil kvikmyndahúsanna í bænum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Er fyrirlesturinn byggður á BA ritgerð sem formaður ritaði við Háskóla Íslands síðastliðið haust.
Hefst fyrirlesturinn kl. 20 stundvíslega, og er aðgangur ókeypis og öllum opinn.

Með bestu kveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

10.2.07

-Aðalfundur-
Nú fer að líða að aðalfundi, en hann verður haldinn þann 3. mars næstkomandi eins og allir ættu að vita.
Ljóst er að mikill áhugi er fyrir fundinum og þegar hafa borist lagabreytingartillögur og eins hefur heyrst af mönnum sem eru farnir að setja sig í framboðsgírinn.
Lögum fjelagsins verður skellt á netið ekki mikið seinna en núna um helgina, og þá geta menn glöggvað sig betur á þeim og jafnvel komið með hugmyndir um eitthvað sem betur mætti fara.

Nánar verður fjallað um komandi fund eftir því sem nær dregur.

Með bestu kveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

9.2.07

- Skrítlur -

Okkur hjónunum áskotnuðust nokkur blöð af Eros - árgangi 1980 - mjög skemmtilegt tímarit með allskyns reynslusögum. Skemmtilegastar eru þó skrítlurnar - en eitthvað hefur nú húmor landans breyst á þeim 27 árum sem liðin eru síðan þetta blað var gefið út !

Leyfi ykkur hér með að njóta einnar skrítlunnar:

"Það hafði orðið slys. Ekið á mann, og eins og venjulega í slíkum tilfellum, dreif að múgur og margmenni til að stumra yfir honum, og sýndist sitt hverjum.
Þangað til ein röggsöm tók af skarið, ýtti karlmönnunum til hliðar og sagði: Leyfið mér að komast að. Ég hef nefnilega lært hjálp í viðlögum.
Hún losaði um belti mannsins, setti jakkann undir höfuðið á honum og skipaði fyrir á báða bóga, þangað til einn þeirra, sem hún hafði stjakað frá, klappaði henni föðurlega á öxlina og sagði: Stúlka mín, þegar þér komið þar að í lærdómnum, sem segir: Sækið lækni, þá skulið þér hlaupa yfir það atriði. Ég er nefnilega kominn"

... mér finnst þessi skrítla um margt skondin, að stúlkukindin skuli dirfast að riðjast svona fram fyrir karlmennina á staðnum ... að hugsa sér.

Hver veit nema að fleiri skrítlur komi síðar.

Ritað í Hafnarfirði þann 9 dag febrúarmánaðar árið 2007 - Jón Arnar

4.1.07

-Fróðleiksmolar í Pakkhúsinu - breytt dagsetning-
Komið þið sælir fjelagar.

Ég vildi bara láta ykkur vita af því að fyrirhugaður fyrirlestur minn um sögu kvikmyndasýninga í Hafnarfirði verður fluttur þann 15. febrúar en ekki 18. janúar eins og sagði í fyrri fréttatilkynningu.
Ég vona bara að sem flestir láti sjá sig og hafi af þessu eitthvert gagn og jafnvel nokkurt gaman.

Með nýárskveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

22.12.06

-Jólakveðja-
Kæru fjelagar.

Sögufjelag Hafnarfjarðar óskar fjelagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir stórskemmtilegt ár sem nú er senn að baki.

Auk þess biðja formaður og ritari fjelagsmenn um að leggja við hlustir á morgun (23. des.) er Ríkisútvarpið les jólakveðjur til landsmanna, því þar mun leynast góð kveðja frá stjórn Sögufjelagsins. Spurning um að menn skipti með sér vöktum til að einhver nái að heyra hvernig kveðjan hljómar á öldum ljósvakans.

Með jólakveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

28.11.06

-Fróðleiksmolar í Pakkhúsinu-
Mig langar að benda fjelagsmönnum á það að á nýju ári mun Byggðasafn Hafnarfjarðar taka aftur upp hina stórskemmtilegu fyrirlestraröð Fróðleiksmolar í Pakkhúsinu, hvar ýmsir aðilar, lærði og leikir, flytja fyrirlestra um ýmislegt sem viðkemur Hafnarfirði.
Einn af hápunktum dagskrár næsta árs er án nokkurs vafa þegar Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar, mun flytja fyrirlestur um sögu kvikmyndasýninga í Hafnarfirði, en Sverrir hefur einmitt nýlokið við að skrifa BA ritgerð um þetta efni. Verður fyrirlesturinn þann 18. janúar, og eins og fyrr segir í hinu svonefnda Brydepakkhúsi. Eru fjelagsmenn hvattir sérstaklega til að mæta.

Með bestu kveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

4.11.06

-Nælonverksmiðja í Hafnarfirði-
Saga hafnfirsks iðnaðar er löng og býsna merkileg um margt. Er skemmst að minnast Raftækjaverksmiðju Hafnarfjarðar, Rafha, sem framleiddi eldavélar og ýmis önnur heimilistæki sem finna mátti á öllum betri heimilum landsins um langt skeið, og flestir landsmenn sem komnir eru til vits og ára þekkja.
Færri vita þó að í upphafi sjöunda áratugarins stóð til að reisa nælonverksmiðju í Hafnarfirði, sem átti að hafa það hlutverk að framleiða ýmiss konar varning úr næloni, en þó fyrst og fremst nælonsokka. Verksmiðju þessari, sem átti að verða gríðarstór og kosta um 20 milljónir króna, hafði verið fundinn staður á 10 þúsund fermetra lóð við Reykjavíkurveginn. Átti verksmiðjan að tryggja um 80 stúlkum atvinnu (það var sérstaklega tekið fram í fjölmiðlum að um stúlkur væri að ræða).
Forráðamenn verksmiðjunnar voru þeir Baldvin Einarsson forstjóri Almennra trygginga og Carl Olsen aðalræðismaður. Höfðu þeir félagarnir tryggt sér mikið fjármagn, sem og vélar, frá V-Þýskalandi, en vantaði einungis að bæjarráð veitti þeim bæjarábyrgð fyrir hluta stofnkostnaðarins. Svo virðist sem málið hafi strandað þar...þó svo að undirritaður sé ekki búinn að kafa það djúpt ofan í málin enn sem komið er.
Óneitanlega hefði það verið gaman ef Hafnarfjörður hefði orðið þekktur sem nælonsokkabærinn.

Með kveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

-Fjelagsmenn athugið enn og aftur!-
Nú vona ég að allir hafi tekið 7. október vel og rækilega frá eins og beðið var um í síðasta pósti, og allt hafi gengið vel í þeim efnum.
Nú er nefnilega komið að því að taka annan dag frá, en að þessu sinni er það laugardagurinn 25. nóvember næstkomandi. Þá verður nefnilega blásið til afmælisveislu Sögufjelags Hafnarfjarðar, en 28. nóvember verða þrjú ár liðin frá því fjelagið var formlega stofnað.
Enn á eftir að ákveða (lesist: finna út) hvar afmælishátíðin verður haldin, en það mun vonandi skýrast á allra næstu dögum. Hafi menn einhverjar uppástungur um fundarstað, og fundardagskrá, þá eru þeir hinir sömu eindregið hvattir til að liggja ekki á þeim hugmyndum sínum, heldur deila þeim með okkar góða formanni.

Með bestu kveðju,
Sverrir Þór Sævarsson, formaður Sögufjelags Hafnarfjarðar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?